Hagasmári 2, breytingar á húsnæði og útfærsla lóðar.
Málsnúmer: 1110193
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1196. fundur
Lagt fram erindi Ásmundar Hilmarssonar, Eyktarsmára 1, Einars Ólafssonar, Engjasmára 9, Guðrúnar Benediktsdóttur, Brekkusmára 2 og Jóhannesar Birgis jenssonar, Arnarsmára 28, dags. 27. október 2011 varðandi afgreiðslu skipulagsnefndar á fundi nefndarinnar 17. október 2011 og varðar Hagasmára 2.$line$$line$Þá lögð fram fundargerð frá samráðfundi með fulltrúum íbúasamtaka Betri Nónhæð 2. nóvbember 2011 þar sem fyrirhugaðar framkvæmdir við húsnæði og lóð Hagasmára 2 voru kynntar. Þá var lagt fram dreifibréf til næsta nágrenni óbyggðasvæðisins sunnan Smáralindar.
Lagt fram og kynnt.
02
Bæjarráð - 2615. fundur
Frá lóðarhöfum Eyktarsmára 1, Engjasmára 9, Brekkusmára 2 og Arnarsmára 28, dags. 27/10, óskað skriflegra svara við spurningum varðandi fyrirhugaðar breytingar á Hagasmára 2.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.
03
Bæjarstjórn - 1044. fundur
Erindi varðandi breytingar á húsnæði Hagasmára 2 og fyrirkomulag lóðar.
Bæjarstjórn samþykkir erindið einróma.
04
Skipulagsnefnd - 1195. fundur
Lagt fram erindi Vilhjálms Einarssonar f.h. Bónax ehf. dags. 14. október 2011 varðandi fyrirhugaðar breytingar á húsnæði Hagasmára 2 (Zinkstöðin) og fyrirkomulag lóðar.
<DIV><DIV><DIV>Með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er það mat skipulagsnefndar að umrædd breyting á húsnæði Hagasmára 2 og útfærsla lóðar hafi ekki grenndaráhrif og samþykkir því erindið.</DIV><DIV>Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.</DIV></DIV></DIV>