Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Beiðni um úrbætur vegna hraðaksturs í Daltúni

Málsnúmer: 1110270

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 16. fundur

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 23. janúar 2012 var lagt fram erindi frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu dags. 17. október 2011 þar sem óskað er eftir ráðstöfunum til lækkunar hraða í götunni.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd hafnaði erindinu á grundvelli þess að hverfið í heild sinni er merkt 30 km svæði með merkingum við allar innkomur. Nefndin samþykkir að sent verði bréf á öll heimili í götunni um að virða hámarkshraða.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 5. mars 2012 er lögð fram tillaga að dreifibréfi.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögu að dreifibréfi.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 15. fundur

Lagt er fram erindi frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu dags. 17. október 2011 þar sem óskað er eftir ráðstöfunum til lækkunar hraða í götunni.

Umhverfis- og samgöngunefnd hafnar erindinu á grundvelli þess að hverfið í heild sinni er merkt 30 km svæði með merkingum við allar innkomur. Nefndin samþykkir að sent verði bréf á öll heimili í götunni um að virða hámarkshraða.