Austurkór 46. Lóðarumsókn.
Málsnúmer: 1110390
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1046. fundur
Tvær umsóknir bárust um lóðina að Austurkór 46, frá Ragnari Kristni Ingasyni og Gróu Hlín Jónsdóttur annars vegar og Georg Gíslasyni og Júlíu Egilsdóttur hins vegar. Lagt er til að dregið verði á milli umsókna í samræmi við úthlutunarreglur Kópavogsbæjar. Ýr Vésteinsdóttir,fulltrúi sýslumanns mætti til að staðfesta framkvæmd útdráttar um byggingarrétt á lóðinni.Dregið var um byggingarrétt skv. úthlutunarreglum Kópavogsbæjar, sbr. endurrit úr gerðarbók sýslumannsins í Kópavogi. Framkvæmdaráð leggur til við bæjarstjórn að Georg Gíslasyni og Júlíu Egilsdóttur verði úthlutað lóðinni Austurkór 46.
Bæjarstjórn samþykkir að úthluta Georg Gíslasyni og Júlíu Egilsdóttur lóðinni Austurkór 46.
02
Framkvæmdaráð - 19. fundur
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs, dags. 15/11, umsögn vegna lóðarúthlutunar. Tvær umsóknir bárust um lóðina að Austurkór 46, frá Ragnari Kristni Ingasyni og Gróu Hlín Jónsdóttur annars vegar og Georg Gíslasyni og Júlíu Egilsdóttur hins vegar. Lagt er til að dregið verði á milli umsókna í samræmi við úthlutunarreglur Kópavogsbæjar. Ýr Vésteinsdóttir,fulltrúi sýslumanns mætti til að staðfesta framkvæmd útdráttar um byggingarrétt á lóðinni.
<EM>Dregið var um byggingarrétt skv. úthlutunarreglum Kópavogsbæjar, sbr. endurrit úr gerðarbók sýslumannsins í Kópavogi. Framkvæmdaráð leggur til við bæjarstjórn að Georg Gíslasyni og Júlíu Egilsdóttur verði úthlutað lóðinni Austurkór 46.</EM>