Bæjarráð 3/11
Málsnúmer: 1111001F
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1045. fundur
2615. fundur
Til máls tóku Ármann Kr. Ólafsson um liði 1, 5, 13 og 28, Ómar Stefánsson um liði 4, 11, 13, 17, 27 og 28, Guðríður Arnardóttir um lið 4, Hafsteinn Karlsson um liði 13 og 24, Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um liði 5 og 13, Ólafur Þór Gunnarsson um lið 28 og lagði til að tillögu undir þeim lið yrði vísað til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012. Þá ræddi Ólafur Þór Gunnarsson um liði 26 og 22, Ómar Stefánsson um liði 22, 24, 27, 13 og 5, Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um liði 22, 21 og 24 og Rannveig Ásgeirsdóttir um liði 24 og 22. Hlé var gert á fundi kl. 18:35. Fundi var fram haldið kl. 19:07. Kl. 19:07 tók Karen Halldórsdóttir sæti Ármanns Kr. Ólafssonar á fundinum. Til máls tóku Hjálmar Hjálmarsson um lið 25 og lagði fram skriflegt svar við fyrirspurn undir þeim lið með eftirfarandi bókun:<EM>"Undirritaður telur að eðlilegt sé að fyrirspurnum bæjarfulltrúa sé svarað á næsta fundi bæjarráðs eða bæjarstjórnar eftir að fyrirspurnin er borin upp eða svo fljótt sem kostur er eðli málsins samkvæmt.</EM> <P style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoPlainText><?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p></P><P style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoPlainText><EM>Hjálmar Hjálmarsson, forseti bæjarstjórnar"</EM></P> Þá fjallaði Hjálmar Hjálmarsson um liði 24, 11, 28, 21 og 4. Því næst tók Gunnar Ingi Birgisson til máls um lið 5 og lagði til að endurskoðun ársreikninga yrði boðin út til fimm ára. Þá ræddi Gunnar Ingi Birgisson um liði 22 og 28. Hlé var gert á fundi kl. 19:42. Fundi var fram haldið kl. 19:43. Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.