Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Huldubraut 15a og b, umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer: 1111452

Ferill máls

01

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 98. fundur

Gísli Jón Höskuldsson, Huldubraut 30, Kópavogi, sækir um leyfi 15. nóvember 2013 til að gera breytingar á burðarvirki að Huldubraut 15a og 15b.$line$Teikn. Jakob Líndal.$line$

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 19. nóvember 2013. Samrýmist lögum nr. 160/2010.

02

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 41. fundur

Gísli Jón Höskuldsson, Huldubraut 30, Kópavogi sækir 2. apríl 2012 um leyfi til að byggja parhús að Huldubraut 15a og 15b.$line$Lögð fram beiðni lóðarhafa dags. 27. mars 2012 um undanþágu frá 6. til 16. hluta byggingarreglugerðar nr. 112/2012, með tilvísun í 1. tölulið í ákvæðum til bráðabirgða í reglugerðinni.$line$$line$Teikn. Jakob Líndal.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 17. apríl 2012. Samrýmist lögum nr. 160/2010.

03

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 37. fundur

Gísli Jón Höskuldsson, Huldubraut 30, Kópavogi, 1. mars 2012 um leyfi til niðurrifs á gömlu einbýlishúsi að Huldubraut 15.$line$Heimild Heilbrigðisfulltrúa til niðurrifs fylgir.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 6. mars 2012. Samrýmist lögum nr. 160/2010.

04

Bæjarstjórn - 1053. fundur

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir erindið.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs einróma og samþykkir erindið.

05

Bæjarráð - 2631. fundur

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu byggingarnefndar og samþykkir erindið.

06

Skipulagsnefnd - 1205. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Jakobs E. Líndal, ALARK - arkitektum fh. lóðarhafa þar sem óskað er heimildar til að rífa 116,7 m2 einbýlishús byggt úr holsteini 1951 og byggja í þess stað tveggja hæða parhús samtals 491 m2 að flatarmáli. Nh. lóðar verður 0,47 í stað 0,11. Uppdættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 1 nóvember 2011. Tillagan var grenndarkynnt með tilvísan í 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðarhöfum Huldubrautar 1-52. Athugasemdir og ábendingar bárust frá Rögnu Karlsdóttur, Huldubraut 38 sbr. bréf dags. 23. janúar 2012 og Eddu Ríkharðsdóttur, Huldubraut 14, sbr. bréf dags. 23. janúar 2012.$line$$line$Þá lögð fram umsögn skipulagsstjóra um framkomnar athugasemdir og ábendingar. Er umsögnin dags. 21. febrúar 2012.$line$

Samþykkt. Enda verði fyrirhuguð bygging færð a.m.k. 1 m fjær lóðarmörkum við götu samanber niðurstöðu ofangreindrar umsagnar.Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

07

Skipulagsnefnd - 1199. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lögð fram tillaga Jakobs E. Líndal, ALARK - arkitektum fh. lóðarhafa þar sem óskað er heimildar til að rífa 116,7 m2 einbýlishús byggt úr holsteini 1951 og byggja í þess stað tveggja hæða parhús samtals 491 m2 að flatarmáli. Nh. lóðar verður 0,47 í stað 0,11. Uppdættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 1 nóvember 2011.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna erindið fyrir lóðarhöfum Huldubrautar 1-52.

08

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 28. fundur

Gísli Jón Höskuldsson, Huldubraut 30, Kópavogi, sækir 18. nóvember 2011 um leyfi til að byggja parhús að Huldubraut 15.$line$Teikn. Jakob Líndal.

<P class=MsoNormal 0pt?? 0cm MARGIN: normal; LINE-HEIGHT:><SPAN lang=EN-GB mso-fareast-language: EN-GB; mso-ansi-language: New IS? 12pt; Roman??,??serif??; ?Times ?? FONT-SIZE: FONT-FAMILY:>Byggingarfulltrúi vísar erindinu 22. nóvember 2011 til skipulagsnefndar með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. </SPAN></P>