Ábyrgð og starfshættir stjórnenda og starfsmanna
Málsnúmer: 1111454
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1050. fundur
Lögð fram til seinni umræðu drög að reglum um ábyrgð og starfshætti ráðinna stjórnenda, kjörinna fulltrúa og nefndarmanna við stjórnsýslu Kópavogsbæjar.
Til máls tóku Ármann Kr. Ólafsson, Guðríður Arnardóttir, Ómar Stefánsson, Guðríður Arnardóttir, Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, Gunnar Ingi Birgisson, Ármann Kr. Ólafsson og Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri.Hlé var gert á fundi kl. 23:36. Fundi var fram haldið kl. 23:40.Til máls tók Ármann Kr. Ólafsson og lagði fram eftirfarandi breytingartillögu:"Út falli c. liður í II. kafla og að í bráðabirgðarákvæði falli brott: "bæjarstjóra og formanni bæjarráðs eða forseta bæjarstjórnar viðvart" og í staðinn komi "starfsmannastjóra viðvart".Bæjarstjórn samþykkti framlagða breytingartillögu Ármanns Kr. Ólafssonar samhljóða. Einn bæjarfulltrúi sat hjá. Bæjarstjórn samþykkti reglur um ábyrgð og starfshætti ráðinna stjórnenda, kjörinna fulltrúa og nefndarmanna með níu samhljóða atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.
02
Bæjarráð - 2619. fundur
Frá bæjarritara, umsögn stjórnsýslusviðs við drög að reglum um ábyrgð og starfshætti stjórnenda og kjörinna fulltrúa, sem lagðar voru fram á fundi bæjarstjórnar þann 22/11 og vísað til seinni umræðu í bæjarstjórn.
Lagt fram. Bæjarráð óskar eftir ábendingum annarra sviða fyrir næsta fund bæjarráðs, þar sem málið verður til lokaafgreiðslu í bæjarráði.
03
Bæjarstjórn - 1046. fundur
Til máls tók Guðríður Arnardóttir og gerði grein fyrir tillögu að reglum um ábyrgð og starfshætti ráðinna stjórnenda, kjörinna fulltrúa og nefndarmanna við stjórnsýslu Kópavogsbæjar. Þá lagði Guðríður til að drögunum yrði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn og að stjórnendum og starfsfólki verði gefinn kostur á að veita umsagnir við tillöguna.Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til síðari umræðu með sjö samhljóða atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá og tveir voru fjarverandi í atkvæðagreiðslunni.