Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skipun fulltrúa ráðsins í vinnuhóp um stöðu safnfræðslumála.

Málsnúmer: 1111455

Ferill máls

01

Menningar- og þróunarráð - 18. fundur

Helga Guðrún Jónasdóttir verður fulltrúi ráðsins í þessum hópi.

02

Bæjarráð - 2629. fundur

Frá sviðsstjóra menntasviðs, tillaga að stofnun vinnuhóps sem skipaður verði fulltrúum grunnskóla- og leikskóladeildar, menningar- og þróunarráðs og forstöðumönnum viðkomandi safna. Hópurinn skili tillögum til úrbóta í maí nk.

Bæjarráð samþykkir tillögu að skipan starfshóps.

03

Bæjarráð - 2618. fundur

Frá myndlistarkennurum í Kópavogi, dags. 31/10, varðandi það að safnkennsla hefur lagst af, þar sem ekki er lengur safnakennari eða leiðsögn um Gerðarsafn, og gerður samanburður við önnur söfn á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til úrvinnslu.