Til baka í fundargerðir
Smiðjuvegur, gangbraut og hringtorg
Málsnúmer: 1111533
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 12. fundur
Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 28. nóvember 2011 var lagt fram erindi frá Jóni Jónssyni dags. 15. nóvember 2011, áframsent frá Umferðarstofu. Erindið varðar umferð við hringtorg á Smiðjuvegi/Stekkjabakka.
Þegar bæði umferðaröryggi og umferðarþungi var skoðaður á svæðinu var umrædd útfærsla gangbrautar talin besti kostur á þessum stað. Nýlega var lokið við framkvæmdina og vill nefndin bíða með frekari aðgerðir við hana. Varðandi hringtorgið Smiðjuveg/Stekkjabakki þá er hönnun þess og útfærsla í höndum Vegagerðarinnar og innan sveitarfélagsmarka Reykjavíkur.