Til baka í fundargerðir
Samningur vegna notkunar á höfundaréttarvörðu efni
Málsnúmer: 1112044
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2859. fundur
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 7. febrúar, lagt fram erindi um endurskoðun samninga við Fjölís varðandi afnot af höfundarvernduðu efni í stjórnsýslu sveitarfélaga. Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti á síðasta fundi þann 27. janúar sl. að mæla með því við sveitarfélögin að þau gangi til samninga við Fjölís.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til úrvinnslu bæjarstjóra.
02
Bæjarráð - 2620. fundur
Frá Fjölís, dags. 2/12, óskað eftir samningi við félagið vegna notkunar á höfundaréttarvörðu efni.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.