Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Færsla marka fjar- og grannsvæða í landi Vatnsenda, ósk um upplýsingar.

Málsnúmer: 1112120

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1199. fundur

Lagt fram erindi Sigurbjörns Þorbergssonar hrl. dags. 26. nóvember 2011 þar sem óskað er upplýsinga um færslu marka fjarsvæða og grannsvæða í landi Vatnsenda.

Eins og kunnugt er þá eru málefni vatnsverndar innan lands Vatnsenda til umfjöllunar í dómsmáli nr. E-971/2011 fyrir Héraðsdómi Reykjaness, Þorsteinn Hjaltested gegn Kópavogsbæ. Í greinargerð Kópavogsbæjar í dómsmálinu er farið ítarlega yfir framvindu málsins síðustu ár. Vísast til umræddrar greinargerðar og ítrekað að hagsmunagæsla í málinu er í höndum lögmanna bæjarins. Mun skipulagsnefnd ekki tjá sig efnislega um málið meðan það er rekið fyrir dómstólum.