Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Arakór 9, breytt deiliskipulag

Málsnúmer: 1112145

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1059. fundur

Samþykkt með tilvísan í nýja tillögu ABS teiknistofu og ofangreinda umsögn Skipulags- og byggingardeildar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar einróma og samþykkir erindið.

02

Skipulagsnefnd - 1209. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi lóðarhafa Arakórs 9 dags. 8. desember 2011 þar sem óskað er eftir að bílgeymsla í fyrirhuguðu húsi verði í norðaustur hluta hússins sbr. uppdrætti ABS teiknistofu í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 11. nóvember 2011. Skipulagsnefnd samþykkti 17. janúar 2012, með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Arakórs 6, 7, 8, Auðnukór 10 og Álmakór 17, 19 og 23. Kynningartíma lauk 16. apríl 2012. Athugasemdir bárust frá Anný Berglindi Thorstensen og Halldóri Ásgrími Elvarssyni lóðarhöfum Arakórs 8 sbr. bréf dags. 14. apríl 2012. Tillagan var lögð fram að nýju á fundi skipulagsnefndar 26. apríl 2012 ásamt framkomnum athugasemdum og ábendingum. Var afgreiðslu frestað og óskað eftir umsögn Skipulags- og byggingardeildar. $line$$line$Lögð fram tillaga ABS teiknistofu að breyttri útfærslu fyrirhugaðs einbýlishúss þar sem komið er til móts við framkomnar athugasemdir og ábendingar.$line$Enn fremur lögð fram umsögn Skipulags- og byggingardeildar dags. 16. maí 2012.

Samþykkt með tilvísan í nýja tillögu ABS teiknistofu og ofangreinda umsögn Skipulags- og byggingardeildar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

03

Skipulagsnefnd - 1208. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi lóðarhafa Arakórs 9 dags. 8. desember 2011 þar sem óskað er eftir að bílgeymsla í fyrirhuguðu húsi verði í norðaustur hluta hússins sbr. uppdrætti ABS teiknistofu í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 11. nóvember 2011. $line$$line$Skipulagsnefnd samþykkti 17. janúar 2012, með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Arakórs 6, 7, 8, Auðnukór 10 og Álmakór 17, 19 og 23. Kynningartíma lauk 16. apríl 2012. Athugasemdir bárust frá Anný Berglindi Thorstensen og Halldóri Ásgrími Elvarssyni lóðarhöfum Arakórs 8 sbr. bréf dags. 14. apríl 2012.$line$

Afgreiðslu fresta. Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn Skipulags- og byggingardeildar.

04

Skipulagsnefnd - 1202. fundur

Lagt fram erindi lóðarhafa Arakórs 9 dags. 8. desember 2011 þar sem óskað er eftir að bílgeymsla í fyrirhuguðu húsi verði í norðaustur hluta hússins sbr. uppdrætti ABS teiknistofu í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 11. nóvember 2011.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Arakórs 6, 7, 8, Auðnukór 10 og Álmakór 17, 19 og 23.