Til baka í fundargerðir
Launað námsleyfi
Málsnúmer: 1112194
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2622. fundur
Frá starfsmannastjóra, dags. 13/12, umsögn um beiðni Eddu Valsdóttur um launað námsleyfi. Lagt er til að bæjarráð samþykki að Edda Valsdóttir leikskólastjóri, fái að hefja töku frestaðs námsleyfis frá árinu 2004, sem er 4,5 mánuðir, sem hún hefur óskað eftir að hefja töku á hausið 2012.
Bæjarráð samþykkir tillögu starfsmannastjóra að Edda Valsdóttir megi ljúka launuðu námsleyfi sem frestað hafði verið og bindur leyfið því skilyrði að Edda starfi áfram hjá Kópavogsbæ að loknu námsleyfinu. Starfsmannastjóri sat fundinn undir þessum lið.