Tillögur að betri nýtingu á stúkubyggingum Kópavogsvallar.
Málsnúmer: 1112212
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2628. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs og sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 31/1, umsögn um möguleika á útleigu á nýju stúkunni á Kópavogsvelli, þar sem lagt er til að salirnir tveir, fundarherbergið og eldhúsið verði boðið út til leigu til reynslu.
Bæjarráð samþykkir að húsnæðið verði auglýst til leigu sem fyrst út september 2012 til reynslu. Sviðsstjóri menntasviðs og deildarstjóri íþróttadeildar sátu fundinn undir þessum lið. Ómar Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.
02
Bæjarráð - 2621. fundur
Eftirfarandi var bókað á fundi íþróttaráðs 14/12:$line$Íþróttaráð hvetur bæjaryfirvöld til að taka ákvörðun um framtíð gömlu stúkunnar á Kópavogsvelli. Íþróttaráð sér fyrir sér að hægt verði að nota gömlu stúkuna sem vélageymslu og vinnustöð fyrir sumarstarfsmenn. Þar með má auka notkunarmöguleika nýju stúkunnar fyrir íþróttastarfsemi enn frekar. $line$$line$
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs og umhverfissviðs.Ómar Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.
03
Íþróttaráð - 9. fundur
Íþróttaráð hvetur bæjaryfirvöld til að taka ákvörðun um framtíð gömlu stúkunnar á Kópavogsvelli. Íþróttaráð sér fyrir sér að hægt verði að nota gömlu stúkuna sem vélageymslu og vinnustöð fyrir sumarstarfsmenn. Þar með má auka notkunarmöguleika nýju stúkunnar fyrir íþróttastarfsemi enn frekar.