Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umhverfis- og samgöngunefnd 6/1

Málsnúmer: 1201004F

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1050. fundur

14. fundur

Forseti óskaði eftir heimild fundarins til að gefa umhverfisfulltrúa orðið á fundinum. Til máls tóku Ármann Kr. Ólafsson og Guðríður Arnardóttir um stjórn fundarins. Bæjarstjórn samþykkti fyrrgreinda beiðni forseta.Til máls tók umhverfisfulltrúi á umhverfissviði og gerði grein fyrir lið 1, tillögu að friðlýsingu Skerjafjarðar. Þá tóku til máls Ómar Stefánsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Björnsdóttir, Gunnar Ingi Birgisson, sem lagði til að afgreiðslu málsins yrði frestað, Hjálmar Hjálmarsson, Guðríður Arnardóttir, Ómar Stefánsson og Margrét Júlía Rafnsdóttir. Hlé var gert á fundi kl. 21:22. Fundi var fram haldið kl. 21:30.Til máls tóku Margrét Björnsdóttir og Ólafur Þór Gunnarsson, sem lagði til að þau tvö svæði sem tillaga að friðlýsingu nær til, verði borin undir atkvæði í sitt hvoru lagi. Þá tók til máls Ármann Kr. Ólafsson. Því næst tók Ármann Kr. Ólafsson til máls um stjórn fundarins. Þá tók til máls Guðríður Arnardóttir.