Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Boðaþing þjónustumiðstöð. Samkomulag Kópavogsbæjar og Hrafnistu um rekstur og starfsemi í Þjónustumiðstöð við Boðþing

Málsnúmer: 1201055

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2906. fundur

Frá sviðsstjóra menntasviðs og deildarstjóra frístunda, dags. 4. mars, lagt fram erindi er varðar endurskoðun samkomulags Kópavogsbæjar og DAS um rekstur og starfsemi í þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar við Boðaþing.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að framlengja samkomulag við DAS um rekstur og starfsemi í þjónustumiðstöð við Boðaþing.

02

Bæjarráð - 2772. fundur

Frá sviðsstjórum mennta- og umhverfissviðs, dags. 20. apríl, lagt til að samkomulag milli Kópavogsbæjar og DAS um rekstur og starfsemi í þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar við Boðaþing verði framlengt til 31. desember 2017. Einnig lagt til að Kópavogsbær og DAS geri með sér sérstakt samkomulag til 31. desember 2016 um rekstur sundlaugar í Boðaþingi 9.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögur um að framlengja samstarfi Kópavogsbæjar og DAS um rekstur og starfsemi í þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar við Boðaþing og að gert verði sérstakt samkomulag um rekstur sundlaugar í Boðaþingi 9.$line$$line$Anna Birna Snæbjörnsdóttir sat fundinn undir þessum lið. $line$$line$Kl. 8.58 víkur Hjördís Ýr Johnson af fundi og Margrét Friðriksdóttir varamaður tekur sæti.

03

Bæjarráð - 2714. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, lagður fram viðauki við samkomulag um rekstur og starfsemi í þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar í Boðaþingi 9, þar sem liður a. í 5. gr. samningsins "Húsvörður" fellur niður frá og með 31. desember 2013.

Bæjarráð samþykkir viðaukann einróma.

04

Bæjarráð - 2670. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs og sviðsstjóra menntasviðs, dags. 14. janúar, tillaga um að framlengja samkomulagi milli Kópavogsbæjar og Hrafnistu um rekstur sundlaugarinnar í Boðaþingi til 31. desember 2014.

Bæjarráð samþykkir tillöguna með fjórum atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

05

Bæjarráð - 2624. fundur

Lögð fram drög að samkomulagi um rekstur og starfsemi í þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar í Boðaþingi, dags. í desember 2011.

Bæjarráð samþykkir samkomulagið.