Austurkór 74, breytt deiliskipulag
Málsnúmer: 1201109
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1053. fundur
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir erindið.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs einróma og samþykkir erindið.
02
Bæjarráð - 2631. fundur
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir erindið.
03
Skipulagsnefnd - 1205. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram erindi Gunnars Páls Kristinssonar, arkitekts f.h. lóðarhafa þar sem óskað er heimildar skipulagsnefndar til að hækka gólfkóta fyrirhugaðs húss að Austurkór 74 um 0,6 m þannig að aðkomukótinn verði 106,1. Enn fremur er óskað eftir hækkun útveggja á framhlið og bakhlið hússins. Uppdrættir í mkv. 1:200 ásamt greinargerð dags. 10. janúar 2012. Tillagan var grenndarkynnt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðarhöfum Austurkórs 54, 56, 58, 60, 62, 64, 72, 76 og 78. Þá lagður fram kynningaruppdráttur með áritun þeirra ofangreindra lóðarhafa sem ekki gera athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd.$line$
Samþykkt.Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
04
Skipulagsnefnd - 1202. fundur
Lagt fram erindi Gunnars Páls Kristinssonar, arkitekts f.h. lóðarhafa þar sem óskað er heimildar skipulagsnefndar til að hækka gólfkóta fyrirhugaðs húss að Austurkór 74 um 0,6 m þannig að aðkomukótinn verði 106,1. Enn fremur er óskað eftir hækkun útveggja á framhlið og bakhlið hússins. Uppdrættir í mkv. 1:200 ásamt greinargerð dags. 10. janúar 2012.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Austurkórs 54, 56, 58, 60, 62, 64, 72, 76 og 78.