Þyrluþjónustan hf. Starfsaðstaða við Gunnarshólma.
Málsnúmer: 1201110
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1202. fundur
Lagt fram erindi Sigurðar Pálmasonar f.h. Þyrluþjónustunnar hf. dags. 14. nóvember 2011 varðandi mögulega starfsstöð Þyrluþjónustunnar við Gunnarshólma.
Frestað.Skipulagsnefnd óskar eftir ítarlegri gögnum m.a. varðandi fyrirhugaða aðstöðu (skilgreiningar) og staðsetningu henna í landi Gunnarshólma; mögulega hávaðamengun m.a. með tilvísan í 3. mgr. 9. reglugerðar um kortlagningu hávaða; varðandi lausnir um fráveitu með tilvísan í lög nr. 9/2009 og nálægð við vatnasvæði Hólmsár; varðandi lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 lið 10a í viðauka 2 þar sem m.a. kemur fram að tilgreindar framkvæmdir á verndarsvæðum eru tilkynningarskyldar til Skipulagsstofnunar, en Gunnarshólmi er innan vatnsverndar (fjarsvæði B); varðandi skilgreiningar á fyrirhugaðri aðstöðu með tilvísan í reglugerð nr. 464/2007 m.a gr. 42 - 48 um skráningu, gögn, öryggissvæði, búnað, hindranafleti, umferð og öryggi.