Til baka í fundargerðir
Óskað eftir kostnaðaráætlun vegna bættrar lýsingar við gangbrautir grunnskóla og umferðarljósa Hagasmára/Smárahvammsvegar. Fyrirspurn frá fulltrúum Sjálfsstæðisflokks
Málsnúmer: 1201251
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 15. fundur
Fulltrúar Sjálfsstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi fyrirspurn á fundi 7. nóvember 2011: Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óska eftir kostnaðaráætlun vegna bættrar lýsingar við gangbrautir grunnskóla Kópavogs. Einnig óska fulltrúarnir eftir kostnaðaráætlun vegna umferðarstillingar/umferðarnæmni umferðarljósa við Hagasmára í vestur/ suðurátt.
Lagt fram og nefndin leggur til að skoðaður verði möguleiki á því að setja upp svokallaða Akureyrarstaura þar sem hægt er við grunnskóla í bænum. Einnig leggur nefndin til að ljósastýringu á Smárahvammsvegi verði breytt.