Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarráð - 2630

Málsnúmer: 1202011F

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 16. fundur

1202373 - Tilnefningar áheyrnarfulltrúa. Frá Hjálmari Hjálmarssyni bæjarfulltrúa Næst-bestaflokksins.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd: Tryggvi M. Þórðarsson.

02

Bæjarstjórn - 1053. fundur

2630. fundur

Til máls tóku Ólafur Þór Gunnarsson um liði 3, 5 og 8, Hjálmar Hjálmarsson um liði 3, 5, (hlé var gert á fundi kl. 16:15 og var fram haldið kl. 16:16) og 10 og lagði fram eftirfarandi tillögu:<EM>"Undirritaður leggur til að aðgangur barna 10 ára og yngri í Sundlaugar Kópavogs verði gjaldfrjáls. </EM><EM>Hjálmar Hjálmarsson"</EM>Vísaði Hjálmar Hjálmarsson í greinargerð um tillöguna í fundargerð bæjarráðs frá 16. febrúar sl.Þá tóku til máls Hafsteinn Karlsson um lið 5, Guðríður Arnardóttir um liði 22 og 5, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um liði 10 og 5, Hafsteinn Karlsson um lið 5 og Guðríður Arnardóttir um stjórn fundarins. Þá tók til máls Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um stjórn fundarins. Þá tóku til máls Hjálmar Hjálmarsson um liði 10, 5 og 19, Ólafur Þór Gunnarsson um liði 10, 22 og 5, og Hjálmar Hjálmarsson um stjórn fundarins. Þá tóku til máls Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um liði 10 og 5, Guðríður Arnardóttir um liði 5, 19, og 22 og lagði til að lið 5 yrði vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs. Þá tóku til máls Ómar Stefánsson um lið 5 og Rannveig Ásgeirsdóttir um lið 22. Þá óskaði Guðríður Arnardóttir eftir því að bera af sér sakir.Hlé var gert á fundi kl. 18:08. Fundi var fram haldið kl. 18:10.Tillaga Hjálmars Hjálmarssonar um aðgang 10 ára og yngri að sundlaugum var lögð fyrir fundinn og var óskað eftir nafnakalli. Atkvæði féllu þannig:Hafsteinn Karlsson sagði jáHjálmar Hjálmarsson sagði jáÓlafur Þór Gunnarsson gerði grein fyrir atkvæði sínu með eftirfarandi bókun og sagði já:<EM>"Rök Hjálmars Hjálmarssonar fyrir tillögu sinni eru sannfærandi og vel rökstudd og leiða ekki til kostnaðarauka fyrir sveitarfélagið."</EM>Ómar Stefánsson sagði neiPétur Ólafsson greiddi ekki atkvæðiRannveig Ásgeirsdóttir sagði neiAðalsteinn Jónsson sagði neiÁrmann Kr. Ólafsson sagði neiGuðríður Arnardóttir gerði grein fyrir atkvæði sínu með eftirfarandi bókun og greiddi ekki atkvæði:<EM>"Tillögur sem þessar hafa áhrif á fjárhagsáætlun og því mun ég taka afstöðu til málsins við gerð næstu fjárhagsáætlunar"</EM>Gunnar Ingi Birgisson sagði nei og Margrét Björnsdóttir sagði neiTillagan var felld með sex atkvæðum en þrír greiddu atkvæði með henni og tveir bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna.Ólafur Þór Gunnarsson og Guðríður Arnardóttir tóku til máls um stjórn fundarins.Tillaga Guðríðar Arnardóttur um að vísa samningi við fyrrverandi bæjarstjóra um starfslok til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs var felld með sex atkvæðum en fimm greiddu atkvæði með henni.Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.