Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Framkvæmdir við Hagasmára 3

Málsnúmer: 1202039

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2647. fundur

Umsögn byggingarfulltrúa, dags. 25. júní, varðandi hugsanlega beitingu dagsekta, þar sem fram kemur að ekki séu skilyrði til að beita þeim að svo stöddu.

Bæjarráð vísar umsögninni að nýju til umhverfissviðs þar sem ekki er fjallað um hljóðmengun í umsögninni.

02

Bæjarráð - 2634. fundur

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs, dags. 14/3, umsögn um erindi Smáralindar ehf. varðandi hálfbyggðan turn að Hagasmára 3 (Norðurturn).

<P style="TEXT-ALIGN: justify; MARGIN: 0cm 1.3pt 0pt 0cm" class=MsoNormal><SPAN style="FONT-FAMILY: " IS? mso-ansi-language: 11pt; FONT-SIZE: Arial?,?sans-serif?;>Bæjarráð samþykkir tillögu í umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs frá 20. febrúar og felur byggingarfulltrúa að kanna hvort skilyrði séu til beitingar dagsekta, ef ekki hefur verið gerð grein fyrir áframhaldandi byggingaráformum fyrir 20. maí nk.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p></SPAN></P>

03

Bæjarráð - 2633. fundur

Frá Smáralind ehf., dags. 7/3, varðandi framkvæmdir við Norðurturninn.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.

04

Bæjarráð - 2631. fundur

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs, dags. 20/2, umsögn, sem óskað var eftir í bæjarráði 9/2 um erindi Smáralindar ehf. vegna Norðurturns, Hagasmára 3.

Lagt fram.

05

Bæjarráð - 2629. fundur

Erindi frá Eignarhaldsfélaginu Smáralind ehf., dags. 31. janúar 2012, þar sem farið er fram á það við bygginga- og skipulagsyfirvöld að þau beiti sér gagnvart eigendum Norðurturns við Smáralind.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og fjármála- og hagsýslustjóra til umsagnar og að hann ræði við forsvarsmenn hússins.