Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Framtíðarferli vegna leiðakerfisskipta hjá Strætó bs.

Málsnúmer: 1202288

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2633. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 6/3, umsögn umhverfis- og samgöngunefndar sem óskað var eftir í bæjarráði 16/2 sl. um drög að nýju ferli vegna leiðakerfisskipta hjá Strætó bs. Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemd við tillögu að vinnuferli við leiðakerfisbreytingar, en telur þó mikilvægt að seinka lokaákvörðun bæjarráða um nokkra daga til t.d. 25. ágúst vegna sumarfría starfsmanna og nefndarmanna.

Bæjarráð felur bæjarritara að koma ábendingu umhverfissviðs á framfæri.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 16. fundur

Á fundi bæjarráðs 16. febrúar 2012 var óskað eftir umsögn umhverfis- og samgöngunefndar vegna erindis frá Strætó bs. um drög að nýju ferli vegna leiðakerfisskipta.

Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemd við tillögu að vinnuferli við leiðakerfisbreytingar en telur þó að réttara að lokaákvörðun bæjarráða eigi að vera síðar en 15. ágúst t.d. fyrir 25. ágúst vegna sumarfría.

03

Bæjarráð - 2630. fundur

Frá Strætó bs., dags. 7/2, kynnt drög að nýju ferli vegna leiðakerfisskipta í ljósi nýrra sveitarstjórnarlaga og óskað eftir umsögn um framkvæmd þess fyrir 23. mars nk.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að kalla saman stýrihóp um Strætó bs.