Vorverk við hafnirnar 2012
Málsnúmer: 1202618
Ferill máls
01
Hafnarstjórn - 82. fundur
Stefán L. fór yfir verkefnalista og fór yfir kostnað. Stefán taldi að gamla flotbryggjan yrði dýrust, þó að kostnaðurinn yrði langt undir þeim 10 m.kr. sem ráðstafað er.$line$A. Laga dekk er nánast búið, 7/5 2012$line$B. Ljós$line$C. Malbik$line$D. Festingar á flotbryggju$line$E. Upptökurampur$line$F. Tiltekt$line$G. Dýpkun á Ýmishöfn: 1.000 pr. m3. Heild 2 m.kr. frá Björgun, reiknað með pramma m/gröfu. Björgun getur farið í þetta eftir 10. maí. $line$
Hafnarstjórn er sammála um að fara í allar þessar framkvæmdir snimmhendis.
02
Hafnarstjórn - 81. fundur
Nauðsynlegt að framkvæma viðgerðir. Verkið er það stórt að gera þarf verðkönnun.
Júlíusi falið að fylgja málinu eftir í samráði vð umhverfissvið.
03
Hafnarstjórn - 81. fundur
Nýtt ljós við uppgöngustiga á Norðurgarðinum. Áætlaður kostnaður kr. 300.000,-.
Hafnarstjóra falið að setja fram framkvæmdaáætlun.
04
Hafnarstjórn - 80. fundur
Hafnarvörður lagði fram verkefnalista 2012:$line$1. Laga dekk (fríholt) á báðum bryggjum gömlu og norðurgarði.$line$2. Setja upp ljós við uppgöngustiga á norðurgarði (krafa frá Siglingamálastofnun).$line$3. Laga malbiksskemmdir við norðurgarð.$line$4. Endurnýjun á festingum á fingrum á flotbryggju 1. Er orðið verulega fúið og mun ekki þola annan vetur.$line$5. Laga upptökuramp við Ýmishöfn.$line$6. Verulegt átak með tiltekt á hafnarsvæðinu.$line$
Rætt um kostnað við einstaka liði. Samþykkt að leggja fram kostnaðaráætlun fyrir næsta fund. Þá er hafnarstjóra falið að leggja fram fjárhagsheimildir til stofnkostnaðar á árinu 2012.