Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Menningar- og þróunarráð 7/3

Málsnúmer: 1203005F

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1055. fundur

19. fundur

Til máls tóku Hjálmar Hjálmarsson um liði 7 og 6, Pétur Ólafsson um lið 7 og Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um lið 7.Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

02

Bæjarráð - 2634. fundur

19. fundur

Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi tillögu:<EM>"Undirrituð leggur til að í starfshóp um Kópavogstún verði skipaðir fulltrúar úr minni- og meirihluta úr öllum þremur nefndunum sem eiga aðild að hópnum.</EM><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM>Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Í þessum "starfshóp" er skipað samkvæmt tillögu sem fyrir lá hjá fyrrverandi meirihluta. Samkvæmt henni hefði núverandi meirihluti getað skipað alla þrjá fulltrúana, en hann hins vegar gætti þess að minnihlutinn fengi fulltrúa í starfshópnum og því eru tveir fulltrúar frá meirihlutanum og einn fulltrúi frá minnihlutanum. Þá er það líklegra til markvissari vinnubragða að þrír skipi starfshópinn frekar en sex.</EM><EM>Ármann Kr. Ólafsson"</EM>Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Tillaga að stofnun fyrrgreinds starfshóps kemur ekki frá fyrrverandi meirihluta heldur frá menningar- og þróunarráði.</EM><EM>Hjálmar Hjálmarsson"</EM>Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Það var einmitt í tíð fyrrverandi meirihluta.</EM><EM>Ármann Kr. Ólafsson"</EM>Bæjarráð hafnar tillögu Guðríðar Arnardóttur með þremur atkvæðum gegn tveimur.Hlé var gert á fundi kl. 9:10. Fundi var fram haldið kl. 9:15.Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:<SPAN style="FONT-FAMILY: " 12pt; mso-fareast-font-family: Calibri; mso-fareast-theme-font: minor-latin; mso-ansi-language: mso-fareast-language: IS; mso-bidi-language: AR-SA? black; FONT-SIZE: Calibri?,?sans-serif?; COLOR:><EM>"Í starfshópi um Kópavogstún er verið að taka verkefni úr fastanefndum bæjarins og færa í sérstakan starfshóp.<SPAN style="mso-spacerun: yes"> </SPAN>Þar stendur til að móta framtíðarstefnu fyrir Kópavogstún, bæði er varðar menningu og skipulag.<SPAN style="mso-spacerun: yes"> </SPAN>Fulltrúi Samfylkingarinnar mun því skipa áheyrnarfulltrúa í starfshópinn á grundvelli 50 gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.</EM></SPAN><SPAN style="FONT-FAMILY: " 12pt; mso-fareast-font-family: Calibri; mso-fareast-theme-font: minor-latin; mso-ansi-language: mso-fareast-language: IS; mso-bidi-language: AR-SA? black; FONT-SIZE: Calibri?,?sans-serif?; COLOR:><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM></SPAN> Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Starfshópurinn mun skila inn tillögunum sem nefndirnar munu taka afstöðu til. Málið mun síðan koma inn í bæjarráð og þaðan til bæjarstjórnar.</EM><EM>Ármann Kr. Ólafsson"</EM><EM></EM>Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Það vantar gögn með 7. lið fundargerðarinnar.</EM><EM>Hjálmar Hjálmarsson"</EM>Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi tillögu:<EM>"Vegna bókunar Guðríðar Arnardóttur um skipan áheyrnarfulltrúa í starfshópinn legg ég til að bæjarráð hafni ósk um skipan áheyrnarfulltrúa í starfshópinn.</EM><EM>Ómar Stefánsson"</EM>Bæjarráð samþykkir tillögu Ómars Stefánsson með þremur atkvæðum gegn tveimur.Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi tillögu: <EM>"Ég legg til að bæjarráð óski eftir úrskurði innanríkisráðuneytis á því álitamáli sem hér er uppi um skipan áheyrnarfulltrúa í starfshópa.</EM><EM>Ómar Stefánsson"</EM>Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi breytingartillögu:<EM>"Að við tillöguna bætist: "Bæjarlögmanni verði falið að gera uppkast að erindi til ráðuneytisins og það verði lagt fyrir bæjarráð til afgreiðslu."</EM><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM>Bæjarráð samþykkir breytingartillögu Guðríðar Arnardóttur einróma. Bæjarráð samþykkir tillögu Ómars Stefánssonar svo breytta einróma. Bæjarráð vísar fundargerðinni til bæjarstjórnar.