Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umsókn um styrk v/Norðurlandameistaramóts í keilu

Málsnúmer: 1203022

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 12. fundur

Tekið til afgreiðslu erindi frá Íþróttafélagi heyrnarlausra (ÍFH) dags. 10/1 sl., styrkumsókn til þátttöku í NM í Kaupmannahöfn í ágúst nk. , en íþróttaráð frestaði afgreiðslu erindisins á síðasta fundi þar til ljóst væri hver þátttaka Kópavogsbúa væri í ferðinni.

Íþróttaráð getur því miður ekki orðið við styrkbeiðni félagsins að þessu sinni.

02

Íþróttaráð - 11. fundur

Lagt fram erindi frá Íþróttafélagi heyrnarlausra (ÍFH) dags. 10/1 sl., þar sem óskað er eftir styrk íþróttaráðs til að senda 10 - 12 manna lið íþróttafélagsins á Norðurlandameistaramót heyrnarlausra í keilu sem haldið verður í Kaupmannahöfn dagana 1.- 4. ágúst nk.$line$

Íþróttaráð frestar afgreiðslu erindisins og felur deildarstjóra að kanna þátttöku Kópavogsbúa í ferðinni.