Umsókn um styrk v/kraftlyftinga
Málsnúmer: 1203023
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 12. fundur
Lagt fram að nýju erindi dagsett 27/3 sl. frá kraftlyftingardeild Breiðabliks, nú með samþykki stjórnar félagsins, um styrk til kaupa á alþjóðlegum keppnisstöngum og lóðum fyrir deildina. Sótt er um 1.200 þús kr.
Íþróttaráð telur sér ekki fært að verða við styrkbeiðni deildarinnar/félagsins að þessu sinni enda hefur allri þeirri fjárveitingu sem er á fjárhagsáætlun árið 2012 til tækjakaupa nú þegar verið ráðstafað.
02
Bæjarráð - 2636. fundur
Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 26/3, umsögn varðandi mögulegan stuðning Kópavogsbæjar við tækjakaup kraftlyftingadeildar Breiðabliks.
Bæjarráð bendir á að erindi sem þetta þarf að berast frá aðalstjórn Breiðabliks.
03
Íþróttaráð - 11. fundur
Lagt fram erindi frá stjórn kraftlyftingadeildar Breiðabliks dags. 18. jan. sl., þar sem óskað er eftir styrk frá íþróttaráði til kaupa á löglegum keppnistsöngum og lóðum fyrir deildina.$line$
Íþróttaráð getur ekki orðið við styrkbeiðni deildarinnar að svo stöddu.