Beiðni um lækkun á vatnsskatti og holræsagjaldi á kirkjur í Kópavogsbæ
Málsnúmer: 1203141
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1058. fundur
Umsögn bæjarritara dags. 23/4 um erindi sóknarnefnda í Kópavogi, vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu, sbr. lið 19 í fundargerð bæjarráðs 26/4.
Margrét Björnsdóttir vék af fundi undir þessum lið. Bæjarstjórn samþykkti tillöguna með níu atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá og einn var fjarverandi.
02
Bæjarráð - 2639. fundur
Frá bæjarritara, dags. 23/4, umsögn um erindi sóknarnefnda Kársnes-, Digranes-, Hjalla- og Lindasókna varðandi lækkun vatnsskatts og holræsagjalda. Engar lagaheimildir eru fyrir niðurfellingu vatnsskatts eða holræsagjalda.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Bæjarráð - 2634. fundur
Frá sóknarnefndum þjóðkirkjunnar í Kópavogi, dags. 6/3, óskað eftir lækkun á vatnsskatti og holræsagjaldi á kirkjur bæjarins.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.