Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Digranesvegur 1. Óskað eftir viðræðum við Kópavogsbæ um lausnir á bílastæðavanda

Málsnúmer: 1203310

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1213. fundur

Óskað eftir viðræðum við Kópavogsbæ um lausnir á bílastæðavanda. Lagt fram erindi Guðna Dags Kristinssonar fh. eiganda húseigninni Digranesvegi 1 dags. 20. mars 2012 og varðar bílastæðamál við húsið. Enn fremur greint frá fundi sem haldinn var 26. apríl 2012 á Umhverfissviði með forsvarsmönnum fyrirtækja að Digranesvegi 1 þar sem fram kom þörf á að yfirfara og endurskipuleggja bílastæða mál í miðbænum. $line$Á fundi skipulagsnefnar 16. maí 2012 fól skipulagsnefnd skipulagstjóra að skoða hugsanlegar lausnir og leggja fram fyrir næsta fund.$line$Á fundi skipulagsnefndar 17. júlí 2012 var erindið lagt fram að nýju ásamt umsögn Umhverfis- og samgöngunefndar um aðgerðir í bílastæðamálum.

Lagt fram.

02

Skipulagsnefnd - 1209. fundur

Lagt fram erindi Guðna Dags Kristinssonar fh. eiganda áð húseigninni Digranesvegi 1 dags. 20. mars 2012 og varðar bílastæðamál við húsið. Enn fremur greint frá fundi sem haldinn var 26. apríl 2012 á Umhverfissviði með forsvarsmönnum fyrirtækja á Digranesvegi 1 þar sem fram kom þörf á að yfirfara og endurskipuleggja bílastæða mál í miðbænum.

Skipulagsnefnd felur skipulagstjóra að skoða hugsanlegar lausnir og leggja fram fyrir næsta fund.

03

Bæjarráð - 2636. fundur

Frá D-1 ehf., dags. 20/3, óskað eftir viðræðum við Kópavogsbæ um mögulegar lausnir á bílastæðavanda við Digranesveg 1.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til úrvinnslu.