Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kvartað yfir vanefndum varðandi frágang í efra Kórahverfi

Málsnúmer: 1204009

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2641. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 3/5, umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði 12/4 sl. um erindi íbúa varðandi frágang við framkvæmdir á Rjúpnahæð.

Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfissviðs að svara bréfritara á grundvelli umsagnarinnar.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 19. fundur

Á fundi bæjarráðs 14. apríl 2012 var óskað eftir umsögn frá nefndinni vegna erindis frá íbúum í Akrakór dags. 1. apríl 2012. Óskað er eftir frágangi og hreinsun í hverfinu.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögu að umsögn til bæjarráðs.

03

Bæjarráð - 2637. fundur

Frá íbúum við Akrakór, tölvupóstur dags. 1/4, óskað eftir umbótum á frágangi göngustíga, gatna og umgengni á auðum byggingarlóðum o.fl. í Kórahverfi.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs, umhverfis- og samgöngunefndar og framkvæmdaráðs til umsagnar.