Gullsmári 9. Beiðni um niðurfellingu fasteignaskatta ásamt ársreikningi 2011
Málsnúmer: 1204048
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2682. fundur
Lögð fram tillaga bæjarritara að afgreiðslu um styrk til greiðslu fasteignaskatts 2012. $line$Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi sínum þann 23. janúar 2007 reglur um styrkveitingar til félaga og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.$line$$line$Á grundvelli reglnanna var auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2012. $line$$line$Félag eldri borgara lagði fram umsókn um styrk vegna greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn til greiðslu fasteignaskatts að upphæð kr. 171.353,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.$line$
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
02
Bæjarráð - 2637. fundur
Frá FEBK, dags. 25/3, óskað eftir lagfæringu á fasteignagjöldum og niðurfellingu fasteignaskatta af húsnæði félagsins í Gullsmára 9.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.