Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Aflakór 1-3. Breytt deiliskipulag

Málsnúmer: 1204229

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1061. fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar sbr. 13 lið í fundargerð 21. júní.

Bæjarstjórn staðfestir einróma afgreiðslu bæjarráðs og samþykkir erindið.

02

Bæjarráð - 2646. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir erindið og vísar afgreiðslu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.

03

Skipulagsnefnd - 1211. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Guðrúnar Fanneyjar Sigurðardóttur, arkitekts f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi við Aflakór 1-3. Í breytingunni felst að hluti útveggja fer 30 sm upp yfir hámarkshæð skv. skipulagsskilmálum lóðarinnar. Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 12. apríl 2012.$line$Skipulagsnefnd samþykkti á fundi 26.4.2012 með tilvísan í gr. 43. skipulagslaga nr. 123/2012 að kynna erindið fyrir lóðarhöfum við Aflakór 2, 4 Akrakór 2, 4 og 6. Lögð eru fram kynningargögn með áritun ofangreindra lóðarhafa, þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd að Aflakór 1-3. $line$

Samþykkt.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1208. fundur

Lögð fram tillaga Guðrúnar Fanneyjar Sigurðardóttur,arkitekts f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi við Aflakór 1-3. Í breytingunni fellst að hluti útveggja fer 30 sm upp yfir hámarkshæð skv. skipulagsskilmálum lóðarinnar. Uppdrætti í mkv. 1:100 dags. 12. apríl 2012.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í gr. 43. skipulagslaga nr. 123/2012 að kynna erindið fyrir lóðarhöfum við Aflakór 2, 4 Akrakór 2, 4 og 6.