Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fótboltagolfvöllur í Fagralundi

Málsnúmer: 1204256

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 20. fundur

Lögð fram tillaga garðyrkjustjóra að staðsetningu fótboltagolfvallar í Fossvogsdal ásamt umsögn.$line$

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillöguna fyrir sumarið 2012 að því gefnu að farið verði eftir ábendingum garðyrkjustjóra og unnið í samráði við hann.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 19. fundur

Lagt fram erindi frá íþróttaráði dags. 26. apríl 2012 þar sem óskað er eftir umsögn frá umhverfis- og samgöngunefnd um fótboltagolfvöll í Fossvogsdal.

Umhverfis- og samgöngunefnd lítur jákvætt á málið fyrir sumarið 2012 og felur garðyrkjustjóra að koma með tillögu að lausn á næsta fund nefndarinnar.

03

Íþróttaráð - 12. fundur

Lögð fram til kynningar tillaga tveggja áhugamenna um tilraunaverkefni að setja upp fótboltagolfvöll í Fossvogsdal. Íþróttaráði líst vel á tillöguna og samþykkir hana fyrir sitt leyti að fenginni umsögn umhverfis- og samgöngunefndar. Íþróttaráð felur starfsmönnum íþróttadeildar að fylgja málinu eftir.