Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarstjórn - 1059. Fundur frá 22. maí 2012.

Málsnúmer: 1205015F

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1211. fundur

1205009F - Skipulagsnefnd 1209. fundur frá 16. maí 2012.$line$Forseti óskaði eftir heimild fundarins til að gefa skipulagsstjóra orðið og var það samþykkt. $line$Hlé var gert á fundi kl. 17.52. Fundi var fram haldið kl. 17.53.$line$Til máls tók Birgir Sigurðsson, skipulagsstjóri, og gerði hann grein fyrir málum sem þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar. Þá tóku til máls Ólafur Þór Gunnarsson um lið 5.$line$Hlé var gert á kl. 18.03. Fundi var fram haldið kl. 18.05.$line$Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu. $line$$line$1112145 - Arakór 9, breytt deiliskipulag $line$Samþykkt með tilvísan í nýja tillögu ABS teiknistofu og ofangreinda umsögn Skipulags- og byggingardeildar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. $line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar einróma og samþykkir erindið. $line$ $line$1204082 - Hólmaþing 16, breytt deiliskipulag $line$Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsstjóra að afmörkun lóðarinnar nr. 16 við Hólmaþing til austurs. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. $line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar samhljóða og samþykkir erindið með fyrirvara um greiðslu lóðagjalda í samræmi við stækkun lóðarinnar. Einn bæjarfulltrúi sat hjá. $line$ $line$1204083 - Kleifakór 1, framkvæmdir án leyfis. $line$Hafnað. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar einróma og hafnar erindinu. $line$ $line$1102314 - Holtsgöng. Nýr Landspítali. Lýsing. Breyting á aðalskipulagi. $line$Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða lýsingu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. $line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar einróma og samþykkir erindið.