Öldusalir/Örvasalir. Stígar. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1205197
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2694. fundur
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að breyttu fyrirkomulagi stígtenginga frá Öldusölum og Örvasölum við aðalstíg milli byggðarinnar og golfvallarins.$line$Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt með tilvísan í kynnta tillögu að breyttu deiliskipulagi að gefa viðkomandi lóðarhöfum kost á stækkun lóða, enda verði greitt fyrir stækkunina sbr. gjaldskrá. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.
02
Skipulagsnefnd - 1227. fundur
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Skipulags- og byggingardeildar að breyttu fyrirkomulagi stígtenginga í Smalaholti. Í tillögunni felst að í stað þriggja stígtenginga frá Öldusölum og Örvasölum við aðalstíg milli byggðarinnar og golvallarins verður um eina tenginu að ræða. Stígtenginar milli Öldusala 3-5 og Örvasala 22 og 24 verða samkvæmt tillögunni feldar út en stígtengingin úr miðju hverfinu við aðalstíginn verður óbreytt. Uppdráttur í mkv. 1:1000 dags. í apríl 2013. Á fundi skipulagsnefndar 16.4.2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Örvasali og Öldursali. Kynningu lauk 7.6.2013. Athugasemdir og ábendingar bárust frá Jóni Ögmundssyni, Öldusölum 1, dags. 3.6.2013; frá Gunnari Stefánssyni og Helgu Ágústu Sigurjónsdóttur, Örvarsölum 9, dags. 6.6.2013.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 2.7.2013.
Skipulagsnefnd samþykkir ofangreinda tillögu að breyttu fyrirkomulagi stígtenginga frá Öldusölum og Örvasölum við aðalstíg milli byggðarinnar og golfvallarins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt með tilvísan í kynnta tillögu að breyttu deiliskipulagi að gefa viðkomandi lóðarhöfum kost á stækkun lóða enda verði greitt fyrir stækkunina sbr. gjaldskrá. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
03
Skipulagsnefnd - 1224. fundur
Lögð fram tillaga Skipulags- og byggingardeildar að breyttu fyrirkomulagi stígtenginga í Smalaholti. Í tillögunni felst að í stað þriggja stígtenginga frá Öldusölum og Örvasölum við aðalstíg milli byggðarinnar og golvallarins verður um eina tenginu að ræða. Stígtenginar milli Öldusala 3-5 og Örvasala 22 og 24 verða samkvæmt tillögunni feldar út en stígtengingin úr miðju hverfinu við aðalstíginn verður óbreytt. Uppdráttur í mkv. 1:1000 dags. í apríl 2013.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Örvasali og Öldursali.
04
Bæjarstjórn - 1067. fundur
Skipulagsnefnd hafnar erindinu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu með átta atkvæðum en einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði gegn afgreiðslu skipulagsnefndar og tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.
05
Skipulagsnefnd - 1218. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 17. júlí 2012 var lögð fram að lokinni kynningu, tillaga Skipulags- og byggingardeildar dags. í maí 2012 þar sem lagt var til að fella út úr deiliskipulagi stíg milli Öldusala 3 og 5. $line$Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Öldusali og Örvasali.$line$Kynningu lauk 30. júní 2012. Athugasemdir og ábendingar bárust frá Gísla Snæbjörnssyni og Evu Björk Aðalgeirsdóttur, Örvasölum 2 sbr. bréfi dags. 4. júní 2012; Ragnari Baldurssyni og Bergrúnu Svövu Jónsdóttur, Örvasölum 18 sbr. bréfi dags. 4. júní 2012; Önnu Maríu Kristjánsdóttur og Ágústi Má Ármann, Öldursölum 3, sbr. bréfi dags. 6. júní 2012; Gauki Garðarssyni og Bergdísi Rósantsdóttur, Örvasölum 22, Vilhjálmi Björnssyni og Jónu Bryndísi Gísladóttur, Örvasölum 24, Andra Þór Gestssyni og Sigurborgu Önnu Ólafsdóttur, Örvasölum 26, Einari Sigurðssyni og Þóreyju Haraldsdóttur, Örvasölum 11 sbr. bréfi dags. 11. júní 2012. Málinu var hafnað og því vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.$line$$line$Lagt fram erindi Rúnars Höskuldssonar Öldusölum 5. dags. 5 október 2012 ásamt ljósmyndum. Enn fremur lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar þar sem fallið er frá gönguleiðum út úr hverfinu annars vegar milli Öldusala 3 og 5 og hins vegar milli Örvasala 22 og 24 þannig að göngutengingar út úr hverfinu verði tvær í stað fjögurra eins og sýnt er í gildandi deiliskipulagi.
Hafnað.
06
Bæjarráð - 2649. fundur
Skipulagsnefnd hafnar erindinu og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með fjórum atkvæðum og hafnar erindinu. Einn bæjarfulltrúi situr hjá.
07
Skipulagsnefnd - 1213. fundur
Á fundi skipualgsnefnar 17. júlí 2012 er lögð fram að lokinni kynningu, tillaga Skipulags- og byggingardeildar dags. í maí 2012 þar sem lagt er til að fella út úr deiliskipulagi stíg milli Öldusala 3 og 5. $line$Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Öldursali og Örvasali.$line$Kynningu lauk 30. júní 2012. Athugasemdir og ábendingar bárust frá Gísla Snæbjörnssyni og Evu Björk Aðalgreirsdóttur, Örvasölum 2 sbr. bréf dags. 4. júní 2012;Ragnari Baldurssyni og Bergrúnu Svövu Jónsdóttur, Örvasölum 18 sbr. bréf dags. 4. júní 2012; Önnu Maríu Kristjánsdóttur og Ágústi Má Ármann, Öldursölum 3, sbr. bréf dags. 6. júní 2012; Gauki Garðarssyni og Bergdísi Rósantsdóttur, Örvasölum 22, Vilhjálmi Björnssyni og Jónu Bryndísi Gísladóttur, Örvasölum 24, Andra Þór Gestssyni og Sigurborgu Önnu Ólafsdóttur, Örvasölum 26, Einari Sigurðssyni og Þóreyju Haraldsdóttur, Örvasölum 11 sbr. bréf dags. 11. júní 2012.
Hafnað. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
08
Skipulagsnefnd - 1209. fundur
Lögð fram tillaga Skipulags- og byggingardeildar dags. í maí 2012 þar sem lagt er til að fella út úr deiliskipulagi stíg milli Öldusala 3 og 5.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Öldursali og Örvasali.