Launakönnun skv. jafnréttisáætlun 2012
Málsnúmer: 1205250
Ferill máls
01
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 25. fundur
Jafnréttis- og mannréttindaráð fagnar skýrslunni og því að mælanlegur árangur hefur náðst í þá átt að útrýma kynbundnum launamuni meðal starfsfólks Kópavogsbæjar. Konur eru 80% starfsmanna Kópavogsbæjar og því vekur athygli hversu fáar konur gegna æðstu stjórnendastöðum innan sveitarfélagsins. Nefndin telur mikilvægt að tekið verði mið af þeirri staðreynd við ráðningar í framtíðinni. Nefndin tekur undir þær aðgerðir sem lagðar eru til í minnisblaði jafnréttisráðgjafa og starfsmannastjóra og vonast til að þær skili enn betri niðurstöðu í næstu könnun.
02
Bæjarráð - 2721. fundur
Frá starfsmannastjóra og jafnréttisfulltrúa, dags. 26. febrúar, minnisblað varðandi skýrslu um mismun á launum karla og kvenna, samkvæmt könnun Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri.
Lagt fram. Starfsmannastjóri og jafnréttisfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.
03
Bæjarráð - 2643. fundur
Lögð fram verðtilboð vegna könnunar á launakjörum karla og kvenna 2012. Málinu er vísað til bæjarráðs, sbr. lið 4 í fundargerð jafnréttis- og mannréttindanefndar 23/5.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda.
04
Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 12. fundur
Lögð eru fram verðtilboð frá Capacent, Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri og Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Rannsóknar- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri átti lægsta tilboðið. Samkvæmt jafnréttisáætlun skal láta framkvæma könnun á launakjörum karla og kvenna árið 2012. Ráðið telur mikilvægt að staðið sé við þær tímaáætlanir. Málinu er vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.