Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stofnfundur samstarfsnefndar íþrótta- og ungmennafélaga í Kópavogi

Málsnúmer: 1205370

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 13. fundur

Lagt fram bréf frá UMSK þar sem greint er frá stofnun samstarfsnefndar íþrótta- og ungmennafélaga í Kópavogi 9. maí síðast liðinn.

Íþróttaráð fagnar stofnun samstarfsnefndar íþrótta- og ungmennafélaga í Kópavogi og vonar að það stuðli að enn betra og markvissara samstarfi félaganna íbúum bæjarins til heilla.Jafnframt leggur íþróttaráð áherslu á að samkomulag um framtíðarskipulag íþróttamála komist á hið fyrsta.

02

Bæjarráð - 2642. fundur

Frá UMSK, dags. 10/5, tilkynning um stofnun samstarfsnefndar íþrótta- og ungmennafélaga í Kópavogi með aðsetur á skrifstofu UMSK í Laugardal.

Lagt fram.