Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Frá aðalfundi Kvenfélagasambands Kópavogs 14.apríl 2012

Málsnúmer: 1205586

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 22. fundur

Á fundi bæjarráðs 31. maí 2012 var erindi frá Kvenfélagasambandi Kópavogs dags. 29. maí 2012 vísað til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.

Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til vinnslu hjá umhverfissviði.

02

Bæjarráð - 2643. fundur

Frá Kvenfélagasambandi Kópavogs, dags. 29/5, ályktun aðalfundarins frá 14/4, þar sem óskað er eftir að fjölgað verði bekkjum og ruslatunnum við göngustíga og á grænum svæðum í bænum.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.