Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarráð - 2647

Málsnúmer: 1206030F

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1213. fundur

1206025F - Skipulagsnefnd 1212. fundur frá 28. júní 2012. $line$ $line$1011193 - Kópavogstún - Kópavogsgerði. Breytt deiliskipulag. Lögð fram í skipulagsnefnd og samþykkt að nýju breytt tillaga dags. 27. júní 2012, þar sem komið er til móts við innsenda athugasemd Valdimars G. Guðmundssonar dags. 31. maí 2012. Einnig lagðar fram innsendar athugasemdir og umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 27. júní 2012. $line$ $line$Bæjarráð frestar afgreiðslu skipulagsnefndar. $line$ $line$1204110 - Baugakór 36, breytt deiliskipulag $line$Erindi umhverfissviðs dags. 24. apríl 2012 um færanlegar kennslustofur á lóð leikskólans við Baugakór 36. Sótt er um að staðsetja tvær færanlegar kennslustofur í norðvesturhluta leikskólalóðarinnar. Skipulagsnefnd vísar erindinu til bæjarráðs til afgreiðslu. $line$ $line$Bæjarráð samþykkir erindið. $line$ $line$1204080 - Huldubraut 31, umsókn um byggingarleyfi $line$Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í gr. 44. skipulagslaga nr. 123/2012 að kynna erindið fyrir lóðarhöfum Huldubraut 29 og 33. $line$Erindið var grenndarkynnt frá 15. maí til 19. júní 2012. Engar athugasemdir bárust. $line$ $line$Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar. $line$ $line$1206519 - Markavegur, breytt deiliskipulag $line$Lagt fram erindi skipulags- og byggingardeildar dags. 27. júní 2012 er varðar breytt fyrirkomulag hesthúsa við Markaveg 1-9. Í breytingunni felst að hestagerði stækka og bílastæði breytast. $line$ $line$Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu. $line$