Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn um fjárhagsaðstoð.

Málsnúmer: 1206071

Ferill máls

01

Félagsmálaráð - 1330. fundur

Fyrirspurn svohljóðandi:"Það er ljóst að umsóknum um fjárhagsaðstoð hefur fjölgað sl. ár og engum dylst að talsverður hópur íbúa í Kópavogi býr við mjög kröpp kjör. Fjárhagsstaða þeirra sem lifa af örorkubótum er erfið og lítur út fyrir fjölgun umsókna þeirra um styrki síðastliðna mánuði. Starfsfólk velferðarsviðs vinnur mjög gott starf við að aðstoða þessa íbúa, ekki síst með faglegri ráðgjöf og stuðningi.
Það er mikilvægur hluti af verkefnum fulltrúa í félagsmálaráði að hafa yfirsýn yfir aðstæður þeirra sem þiggja þjónustu og framfærslu sveitarfélagsins og þess vegna biður undirrituð um eftirfarandi upplýsingar:
1) Fjölda þeirra sem fá framfærslu sl. 3 ár og fjölda barnafjölskyldna í þeim hópi.
2) Hve margir þeirra hafa dottið út af bótum atvinnuleysistrygginga?
3) Hve margir öryrkjar hafa beðið um styrki/aðstoð sl. ár, hve margir fengið aðstoð?
4) Hve mörg börn eru í þeim hópi?
5) Hve margir þeirra sem fá framfærslu þiggja aðstoð hjálparsamtaka (mataraðstoð, hjálparstofnun o.s.frv.)?
6) Hve mörgum er ráðlagt að bæta afkomu sína með að leita eftir aðstoð hjálparsamtaka?
Guðbjörg Sveinsdóttir fulltrúi VG í félagsmálaráði." Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar og Hanna María Jónsdóttir ráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.