Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Styrkbeiðni vegna auglýsingaherferðar undir yfirskriftinni "Við styðjum textun á öllu íslensku sjónvarpsefni"

Málsnúmer: 1206101

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2649. fundur

Umsögn bæjarritara, dags. 18. júlí, varðandi styrkbeiðni Félags heyrnarlausra, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 100.000,- til stuðnings auglýsingaátaks félagsins en það felst í að þrýsta á sjónvarpsstöðvar að texta sjónvarpsefni. Erindinu var frestað á fundi bæjarráðs, 7. júní sl. $line$Lagt er til að erindinu verði hafnað enda samrýmist það ekki starfsemi bæjarins að taka þátt með almennum hætti í þrýstiaðgerðum hagsmunahópa eða félagasamtaka.

Bæjarráð hafnar erindinu.

02

Bæjarráð - 2644. fundur

Frá félagi heyrnarlausra, dags. 6. júní, varðandi styrkbeiðni til verkefnisins "Textinn er málið"

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.