Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Furugrund 83. Áhorfendabekkir í Fagralund. Styrkumsókn

Málsnúmer: 1206211

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2648. fundur

Umsögn íþróttaráðs, dags. 4. júlí, varðandi styrkbeiðni sem var lögð fram á fundi bæjarráðs 14. júní sl. og vísað til umsagnar íþróttaráðs. Íþróttaráð lítur jákvætt á erindi félagsins og telur rétt að málið verði skoðað við gerð næstu fjárhagsáætlunar.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2013.

02

Íþróttaráð - 14. fundur

Lagt fram erindi aðalstjórnar HK dagsett 6. júní sl. þar sem óskað er eftir styrk til að fjármagna áhorfendabekki í íþróttasal Fagralundar Furugrund 83.$line$Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar íþróttaráðs á fundi sínum 14. júní sl.

Íþróttaráð lítur jákvætt á erindi félagsins og telur rétt að málið verði skoðað við gerð næstu fjárhagsáætlunar.

03

Bæjarráð - 2645. fundur

Frá Handknattleiksfélagi Kópavogs, f.h. blakdeildar HK, dags. 6. júní, styrkbeiðni til kaupa á áhorfendabekkjum í íþróttasali Fagralundar.

Bæjarráð vísar erindinu til íþróttaráðs og sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.