Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Asparhvarf 18 - Reiðskóli

Málsnúmer: 1206259

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1212. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Jákvætts ehf. f.h. lóðarhafa Asparhvarfi 18 þar sem óskað er heimildar skipulagsnefndar til að reka reiðskóla á lóðinni sumarmánuðina júní, júlí og ágúst. Erindið var lagt fram á fundi skipulagsnefndar 19. júní 2012 ásamt ljósmyndum sem sýna aðstöðu á lóð enn fremur samþykki lóðarhafa að Asparhvarfi 20, 12, 14, 16, 13 og 15. Skipulagsnefnd samþykkti 19. júní 2012, með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Asparhvarfs 2, 4, 6, 10, 12, 14, 16, 20 og 22. $line$$line$Tillagan lögð fram að nýju. Enn fremur lögð fram kynningargögn með áritun ofangreindra lóðarhafa, þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við starfsemi fyrirhugaðs reiðskóla sbr. erindi. Ekki hafa borist samþykki allra.

Frestað.

02

Skipulagsnefnd - 1211. fundur

Lagt fram erindi Jákvætts ehf. f.h. lóðarhafa Asparhvarfi 18 þar sem óskað er heimildar skipulagsnefndar til að reka reiðskóla á lóðinni sumarmánuðina júní, júlí og ágúst. Lagðar fram ljósmyndir sem sýna aðstöðu á lóð ásamt samþykki lóðarhafa að Asparhvarfi 20, 12, 14, 16, 13 og 15.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Asparhvarfs 2, 4, 6, 10, 12, 14, 16, 20 og 22.