Tillaga að gjaldfrjálsum aðgangi eldri borgara í sundlaugar Kópavogs
Málsnúmer: 1206484
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1061. fundur
Gunnar I. Birgisson, leggur fram eftirfarandi tillögu: $line$$line$"Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að eldri borgarar 70 ára og eldri fái gjaldfrjálsan aðgang að sundstöðum Kópavogsbæjar frá og með 1. júlí 2012.$line$$line$Greinargerð$line$Það er mjög mikilvægt að Kópavogsbær hvetji til aukinnar heilsuræktar eldri borgara. Slíkt bætir líðan fólks og sparar samfélaginu mikla fjármuni með bættri heilsu eldri borgara.$line$$line$Eftir að Kópavogsbær hóf að taka gjald fyrir sundferðir eldri borgara í sundlaugum bæjarins hafa margir farið í sundlaugar nágrannasveitarfélaganna þar sem slík þjónusta er gjaldfrjáls. Kostnaður bæjarsjóðs vegna þessarar tillögu er óverulegur og gæti numið um 5 milljónum króna á ársgrundvelli.$line$$line$Gunnar Ingi Birgisson"
Til máls tóku Gunnar Ingi Birgisson, Hjálmar Hjálmarsson, Ólafur Þór Gunnarsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Gunnar Ingi Birgisson, Hjálmar Hjálmarsson, Ómar Stefánsson og Hjálmar Hjálmarsson sem óskaði eftir að bera af sér sakir. Þá tóku til máls Ólafur Þór Gunnarsson, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, sem lagði til að tillögunni yrði vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2013, Gunnar Ingi Birgisson og Ómar Stefánsson sem óskaði eftir að bera af sér sakir. Gunnar Ingi Birgisson, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, Gunnar Ingi Birgisson, Pétur Ólafsson og Ómar Stefánsson tóku til máls um stjórn fundarins. Þá tóku til máls Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri.Tillaga Ármanns Kr. Ólafssonar um að vísa tillögu Gunnars Inga Birgissonar til gerðar fjárhagsáætlunar 2013 samþykkt með átta atkvæðum gegn tveimur. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.