Beiðni Kattavinafélags Íslands um samkomulag við Kópavogsbæ varðandi óskilaketti úr Kópavogi
Málsnúmer: 1207090
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2657. fundur
Frá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, dags. 10. október, tillaga að gjaldskrá fyrir kattahald.
Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Hundaeigendur greiða gjald vegna kostnaðar við hundaeftirlit og eðlilegt að samskonar gjald verði innheimt af eigendum katta.</EM><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM><EM></EM>Ólafur Þór Gunnarsson og Ómar Stefánsson tóku undir bókun Guðríðar.Bæjarráð frestar afgreiðslu.
02
Bæjarráð - 2648. fundur
Frá Kattavinafélagi Íslands, dags. 4. júlí, þar sem óskað er eftir að samkomulag verði gert vegna óskilakatta úr Kópavogi.
Bæjarráð vísar erindinu til heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar-, Kópavogs og Garðabæjar til úrvinnslu. Þá óskar bæjarráð eftir því að heilbrigðiseftirlitið setji reglur um gjaldtöku vegna handsömunar og geymslu óskilakatta. Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Legg til að leitað verði tilboða víðar vegna geymslu, aflífunar og eyðingu óskilakatta.</EM><EM>Ómar Stefánsson"</EM>