Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindisbréf atvinnu- og þróunarráðs

Málsnúmer: 1207107

Ferill máls

01

Atvinnu- og þróunarráð - 16. fundur

Erindisbréf Atvinnu- og þróunarráðs var lagt fram en það var samþykkt var einróma í bæjarráði þann 12. desember sl.

Ráðið fagnar því að erindisbréf hafi borist.

02

Bæjarráð - 2712. fundur

Lagt fram að nýju erindisbréf atvinnu- og þróunarráðs, sem vísað var til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs á fundi bæjarstjórnar þann 10. desember, ásamt minnisblaði bæjarlögmanns.

Bæjarráð samþykkir erindisbréf atvinnu- og þróunarráð einróma.

03

Bæjarstjórn - 1087. fundur

Lagt fram erindisbréf fyrir atvinnu- og þróunarráð. Bæjarráð vísaði drögum að erindisbréfi til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erla Karlsdóttir lagði til að afgreiðslu erindisbréfs verði frestað. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði til að afgreiðslu erindisbréfs verði vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs. Bæjarstjórn samþykkir að vísa erindisbréfi atvinnu- og þróunarráðs til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs.

04

Bæjarráð - 2711. fundur

Lagt fram erindisbréf fyrir atvinnu- og þróunarráð.

Bæjarráð vísar drögum að erindisbréfi til afgreiðslu bæjarstjórnar.