Holtsgöng, breyting á svæðisskipulagi
Málsnúmer: 1207167
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1067. fundur
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Bæjarstjórn gerir ekki athugasemd við tillögu að breyttu Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 vegna Holtsgangna og byggingarmagns á byggingarreit 5. Samþykkt einróma.
02
Skipulagsnefnd - 1218. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 17. júlí 2012 var lagt fram erindi samvinnunefndar um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins dags. maí 2012, br. 4. júlí 2012 um breytingu á Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024. Einnig var lögð fram greinargerð og umhverfisskýrsla dags. 1. apríl 2012.$line$Í tillögunni er lagt til að fella út stofnbraut (Holtsgögn) innan Reykjavíkur og hinsvegar að breyta byggingarmagni á byggðarsvæði nr. 5. (Landsspítalalóð) sbr. töflu 3.2 í greinargerð svæðisskipulagsins. $line$ $line$Skipulagsnefnd vísaði til afgreiðslu nefndarinnar frá 16. maí 2012 og bæjarstjórnar Kópavogs frá 22. maí 2012. Skipulagsnefnd Kópavogs setti jafnframt fram fyrirvara við það verklag sem haft hefur verið við málsmeðferð varðandi Holtsgöng og aukið byggingamagn á byggingasvæði nr. 5 (Landsspítalalóð) þar sem lítil umræða hefur farið fram á svæðisvísu um staðsetningu Landsspítalans og stofnbrautakerfi höfuðborgarsvæðisins hvað varðar Holtsgöng. Skipulagsnefnd beindi því til samvinnunefndar um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins að sú umræða fari fram áður en gengið verður endanlega frá umræddum breytingum á svæðisskipulaginu. $line$$line$Á fundi bæjarráðs 1. nóvember 2012 var lagt fram erindi SSH dags. 27. október 2012: Tillaga að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024. Holtsgöng, breyting á gatnakerfi og breyting á byggingarmagni á byggingarreit 5. Bæjarráð vísaði erindinu til úrvinnslu skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að umrædd tillaga að breyttu Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 vegna Holtsganga og byggingarmagns á byggingarreit 5 verði vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Skipulagsnefnd Kópavogs telur að bókun nefndarinnar frá 17. júlí 2012 hafi um margt skerpt umræður í svæðisskipulagsnefndinni og undirstrikað hve brýnt það er að ígrunda vel þær ákvarðanir sem þar eru teknar. Á þetta sérstaklega við í þeim málum sem varðar heildarhagsmuni íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsins alls.
03
Skipulagsnefnd - 1213. fundur
Lagt fram erindi samvinnunefndar um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins dags. maí 2012, br. 4. júlí 2012 um breytingu á Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024. Einnig lögð fram greinargerð og umhverfisskýrsla dags. 1. apríl 2012.$line$Í tillöguni er lagt til að fella út stofnbraut (Holtsgögn) innan Reykjavíkur og hinsvegar að breyta byggingarmagni á byggðarsvæði nr. 5. (Landspítalalóð) sbr. töflu 3.2. í greinargerð svæðisskipulagssins.
Skipulagsnefnd vísar til afgreiðslu nefndarinnar frá 16. maí 2012 og bæjarstjórnar Kópavogs frá 22. maí 2012. Skipulagsnefnd Kópavogs setu fyrirvara við það verklag sem haft hefur verið við málsmeðferð varðandi Holtsgöng og aukið byggingamagn á byggingasvæði nr. 5 (Landsspítalalóð) þar sem lítil umræða hefur farið fram á svæðisvísu um staðsetningu Landsspítalans og stofnbrautakerfi höfuðborgarsvæðisins hvað varðar Holtsgöng. Skipulagsnefnd beinir því til samvinnunefndar um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins að sú umræða fari fram áður en gengið verður endanlega frá umræddum breytingum á svæðisskipulaginu.