Álaþing - skjólveggur
Málsnúmer: 1208117
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2651. fundur
Lagt fram erindi íbúa við Álaþing 4, 6, 8, 10 og 12. Sótt um að byggja skjólvegg á lóðarmörkum sem liggja að göngustíg bæjarins. Óskað er eftir að fara út fyrir lóðarmörk með tvö útskot á hverri lóð. Meðfylgjandi ljósmyndir sýna aðstæður. Þá lagðir fram uppdrættir með samþykki lóðarhafa Álaþings 4, 6, 8, 10 og 12.$line$Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna. Skipulagsnefnd bendir á að rétt norðan lóðarmarka parhúsa við Álaþing 4, 6, 8, 10 og 12 er jarðstrengur sem þolir ekkert hnjask og þurfa framkvæmdir við fyrirhugað grindverk að taka mið af því. Ef færa þarf strenginn vegna þessa skal það gert á kostnað lóðarhafa. Framkvæmdir skulu jafnframt vera í samráði við OR og framkvæmdadeild Umhverfissviðs. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.$line$
Bæjarráð samþykkir erindið.
02
Skipulagsnefnd - 1214. fundur
Lagt fram erindi íbúa við Álaþing 4, 6, 8, 10 og 12. Sótt um að byggja skjólvegg á lóðarmörkum sem liggja að göngustíg bæjarins. Óskað er eftir að fara út fyrir lóðarmörk með tvö útskot á hverri lóð. Meðfylgjandi ljósmyndir sýna aðstæður. Þá lagðir fram uppdrættir með samþykki lóðarhafa Álaþings 4, 6, 8, 10 og 12.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna. Skipulagsnefnd bendir á að rétt norðan lóðarmarka parhúsa við Álaþing 4, 6, 8, 10 og 12 er jarðstrengur sem þolir ekkert hnjask og þurfa framkvæmdir við fyrirhugað grindverk að taka mið af því. Ef færa þarf strenginn vegna þessa skal það gert á kostnað lóðarhafa. Framkvæmdir skulu jafnframt vera í samráði við OR og framkvæmdadeild Umhverfissviðs. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.