Austurkór 79 - breytt deiliskipulag
Málsnúmer: 1208124
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1065. fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með níu atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar voru fjarverandi.
02
Bæjarráð - 2658. fundur
Samþykkt. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.$line$
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.
03
Skipulagsnefnd - 1217. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Pálmars Kristmundssonar, arkitekts, fyrir hönd lóðarhafa, dags. 14. september 2012 þar sem óskað er eftir breytingu á áður samþykktu deiliskipulagi. Í breytingunni að á lóðinni verði byggt fjölbýlishús, stallað í hæð, á 2 hæðum með 16 íbúðum í stað fjölbýlishúss á 2 og 3 hæðum auk kjallara með 12 íbúðum. Lóð og byggingareitur stækka, hámarksbyggingarmagn minnkar og nýtingarhlutfall lækkar.$line$Á fundi skipulagsnefndar 18. sept. 2012 var samþykkt að kynna tillöguna í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðarhöfum Austurkórs 2, 4, 24, 75, 77, 81, 83 og 85. Þá lögð fram kynningargögn með undirskriftum ofangreindra lóðarhafa þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við tillöguna.
<P>Samþykkt. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.</P>
04
Skipulagsnefnd - 1216. fundur
Lagt fram erindi Pálmars Kristmundssonar, arkitekts, fyrir hönd lóðarhafa, dags. 30.7. 2012 þar sem óskað er eftir breytingu á áður samþykktu deiliskipulagi. Í breytingunni felst lóðarstækkun og að á lóðinni verði byggt fjölbýlishús á 2 hæðum með 18 íbúðum í stað fjölbýlishúss á 2 og 3 hæðum auk kjallara með 12 íbúðum. Lóð og byggingareitur stækka, hámarksbyggingarmagn minnkar og nýtingarhlutfall lækkar.$line$Frestað. Skipulags- og byggingasviði falið að fá fleiri útfærslur á skipulagi lóðarinnar.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt nýrri útfærslu fyrirhugaðs fjölbýlishúss á lóðinni, dags. 14. september 2012 þar sem gert er ráð fyrir 16 íbúðum (fækkað um 2 frá fyrri tillögu), húsið er stallað í hæð og stytt og fært til á lóð.
Skipulagsnefnd samþykkir í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Austurkór 2, 4, 24, 75, 77, 81, 83 og 85.Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri Grænna benda á að tillagan rífur tengsl á milli opinna svæða og skerðir þar með gildi leiksvæðisins og sitja hjá við afgreiðslu málsins.
05
Skipulagsnefnd - 1214. fundur
Lagt fram erindi Pálmars Kristmundssonar, arkitekts, fyrir hönd lóðarhafa, dags. 30.7. 2012 þar sem óskað er eftir breytingu á áður samþykktu deiliskipulagi. Í breytingunni felst lóðarstækkun og að á lóðinni verði byggt fjölbýlishús á 2 hæðum með 18 íbúðum í stað fjölbýlishúss á 2 og 3 hæðum auk kjallara með 12 íbúðum. Lóð og byggingareitur stækka, hámarksbyggingarmagn minnkar og nýtingarhlutfall lækkar.
Frestað. Skipulags- og byggingasviði falið að fá fleiri útfærslur á skipulagi lóðarinnar.