Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fossvogur. Brú fyrir vistvænar samgöngur.

Málsnúmer: 1208451

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1256. fundur

Lögð fram drög að skipulagslýsingu "Brú fyrir vistvænar samgöngur yfir Fossvoginn" dags. 16.3.2015 sem unnin er í samstarfi við Reykjavíkurborg.

Lagt fram og kynnt. Skipulagsnefnd samþykkti að drögin verði unnin áfram.$line$$line$"Til að hægt sé að réttlæta eins umfangsmikla og dýra framkvæmd sem þessa brú, þurfa að liggja fyrir upplýsingar um að hún sé veruleg samgöngubót fyrir vistvænar samgöngur. Í fyrirliggjandi skýrslu eru einungis upplýsingar um fjölda gangandi og hjólandi á hverjum degi við botn Fossvogs, þ.e. 500-1000 manns og nokkuð ljóst að brúin styttir ekki þeirra leið.$line$Undirrituð óskar eftir útreikningum á styttingu göngu- og hjólaleiða sem brúin skapar frá botni Kópavogs (Kópavogsleirum) til LSH, HR, HÍ og Lækjartorgs og hve margir gangandi og hjólandi eru á þessum leiðum."$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 63. fundur

Lögð fram drög að skipulagslýsingu varðandi brú fyrir vistvænar samgöngu yfir Fossvog dags. 12.2.2015.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagða tillögu að skipulagslýsingu og felur umhverfissviði að vinna áfram með lýsinguna.$line$Hreggviður Norðdahl færir til bókar: Ég lýsi andstöðu minni við staðsetningu brúarinnar og vil henni sé komið fyrir innar í voginum.

03

Skipulagsnefnd - 1227. fundur

Lagt fram bréf frá Ungmennasambandi Kjalarnesþings dags. 15. maí 2013 þar sem fram koma áhyggjur vegna fyrirhugaðrar byggingu brúar yfir Fossvog og hvaða áhrif brúargerðin geti haft á siglingaklúbba á svæðinu.

Lagt fram.

04

Hafnarstjórn - 91. fundur

Kynning á hugmynd að brú yfir Fossvoginn á Aðalskipulagi Kópavogs

05

Bæjarráð - 2689. fundur

Frá Ungmennasambandi Kjalarnesþings, dags. 15. maí, vegna áforma um reiðhjólabrú yfir Fossvog.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til úrvinnslu.

06

Íþróttaráð - 25. fundur

Lagt fram til kynningar erindi frá Siglingasambandi Íslands dags. 22. apríl sl. Þar lýsir sambandið áhyggjum sínum yfir áformum um reiðhjólabrú yfir Fossvog sem hafi veruleg áhrif á siglingastarfsemi á svæðinu.

07

Skipulagsnefnd - 1225. fundur

Lagt fram bréf frá Siglingasambandi Íslands dags. 22.4.2013.

Lagt fram. Skipulagsnefnd óskar eftir því að Umhverfissvið fundi með fulltrúum Siglingasambands Íslands um efni bréfsins.

08

Skipulagsnefnd - 1214. fundur

Lagt fram erindi Alark ehf, arkitekta, varðandi hugmynd að hjóla- og göngubrú yfir Fossvoginn sbr. kynningargögn dags. 14.ágúst 2012.

Lagt fram og kynnt.