Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarráð, 13. september

Málsnúmer: 1209009F

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1063. fundur

2653. fundur

Til máls tóku Hjálmar Hjálmarsson um lið 22, Gunnar Ingi Birgisson um liði 22 og 4, Guðríður Arnardóttir um lið 13 og lagði til að drögum að samningi við Skógræktarfélag Kópavogs verði vísað til umhverfis- og samgöngunefndar, Pétur Ólafsson um lið 22 og lagði til að bæjarráð setji sér reglur um styrkúthlutanir ráðsins, Ólafur Þór Gunnarsson um liði 13, 22 og 12, Pétur Ólafsson um lið 22, Hjálmar Hjálmarsson um liði 13 og 22 og lagði til að umræðu um tilfallandi styrki vegna tómstunda, íþrótta o.fl. verði vísað til fjárhagsáætlunargerðar, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um liði 22, 4 og 13 og lagði til að greiðslur vegna samningsins taki mið af fjárhagsáætlun ársins og kostnaður vegna hans sem rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar verði vísað til gerðar fjárhagsáætlunar ársins 2013, og Aðalsteinn Jónsson um liði 22 og 12.Tillaga Péturs Ólafssonar um styrkúthlutanir var samþykkt með 10 samhljóða atkvæðum.Tillaga Hjálmars Hjálmarssonar um að vísa tilfallandi styrkjum til gerðar fjárhagsáætlunar var felld með fjórum atkvæðum en tveir greiddu atkvæði með henni. Fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.

02

Skipulagsnefnd - 1216. fundur

1208018F - Skipulagsnefnd, 5. september 1215. fundur$line$$line$Lagt fram.