Umsókn um styrk vegna keppnisferðar í skák
Málsnúmer: 1209095
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2656. fundur
Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 2. október, umsögn íþróttaráðs sbr. lið 4 í fundargerð: Íþróttaráð bendir á að Skákstyrktarsjóður Kópavogs hefur styrkt sambærileg erindi og telur eðlilegt að bæjarráð vísi erindinu þangað.
Bæjarráð bendir bréfritara á að vísa erindinu til Skákstyrktarsjóðs Kópavogs.
02
Íþróttaráð - 16. fundur
Erindi frá Álfhólsskóla, dags. 3. september, þar sem sótt er um styrk vegna keppnisferðar á Norðurlandamót barnaskólasveita í skák í Stokkhólmi 6.-9. sesptember sl.$line$Bæjarráð vísaði erindinu til íþróttaráðs til umsagnar.$line$$line$
Íþróttaráð bendir á að Skákstyrktarsjóður Kópavogs hefur styrkt sambærileg erindi og telur eðlilegt að bæjarráð vísi erindinu þangað.
03
Bæjarráð - 2653. fundur
Erindi Álfhólsskóla, dags. 3. september, þar sem sótt er um styrk vegna keppnisferðar í skák.
Hjálmar Hjálmarsson lagði til að erindinu væri vísað til umsagnar skólanefndar en var það fellt með tveimur atkvæðum. Einn greiddi atkvæði með tillögunni en tveir fulltrúar sátur hjá. Bæjarráð vísar erindinu til íþróttaráðs til umsagnar. Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Hér eru fulltrúar í meirihlutanum að reyna að þagga niður eðlilega umræðu um skólastarf í Kópavogi.</EM><EM>Hjálmar Hjálmarsson"</EM> Rannveig Ásgeirsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:<SPAN style="FONT-FAMILY: "Tahoma","sans-serif"; COLOR: black; FONT-SIZE: 10pt; mso-fareast-font-family: "Times New Roman"; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: IS; mso-bidi-language: AR-SA"><EM>"Umsókn um styrk til keppnisferðar er í sjálfu sér ekki fagleg umræða inni í skólanefnd. Hins vegar væri það góð umræða að fara yfir verkefni sem nemendur taka þátt í utan skólatíma og almenn áhrif þeirra á skólastarf og viðbót við lærdóm.</EM></SPAN><SPAN style="FONT-FAMILY: "Tahoma","sans-serif"; COLOR: black; FONT-SIZE: 10pt; mso-fareast-font-family: "Times New Roman"; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: IS; mso-bidi-language: AR-SA"><EM>Rannveig Ásgeirsdóttir"</EM></SPAN>